DUX RANNSÓKNIR Í YFIR 80 ÁR

RANNSÓKNIR Í YFIR 80 ÁR

Rannsóknir Okkar Sýna Að DUX Getur Fært Þér 10% Meiri Djúpsvefn

DUX hefur skuldbundið sig til þess að bæta lífskjör með því að stuðla að betri svefni.  Vísindamenn okkar hafa rannsakað og prófað hvern hluta DUX rúmanna með bestu vísindalegu stöðlum. DUX hefur sett rannsóknarstaðla í iðnaði í yfir 80 ár.

Styrkleikapróf
Hárnákvæm styrkleikapróf tryggja framúrskarandi gæði DUX rúmanna til lengri tíma. Fingal, okkar einstaka 130 kg trégína, prófar látlaust rúm sem koma beint úr framleiðslunni, með því að framkvæma yfir 600.000 veltur í hverri viku.



Það jafnast á við 30 ára notkun sem er 3 til 4 sinnum lengri tími en líftími góðra rúma á markaðnum.

Samþjöppunarpróf
Samþjöppunarhermir prófar mismunandi svæði DUX rúmsins með tilliti til þrýstings á móti líkamanum og ber þau próf saman við próf á öðrum rúmum. Hingað til hefur engin samkeppni verið. Þrýstingurinn á móti líkamanum í DUX rúmi er ekki aðeins minni, heldur einnig með jafnari dreifingu.

Svefngæðapróf
Vísindamenn prófuðu hversu djúpur svefn næst í DUX rúmi með því að nota EEG til að skrá rafræna virkni í heilaberkinum. DUX rúmið kom alltaf betur út og gaf meiri djúpsvefn! Þeir sem sváfu í DUX rúmi náðu djúpsvefni hraðar og héldust í djúpsvefni sem nam einni klukkustund lengur, að jafnaði á hverri nóttu.

UPPLÝSINGASAFN FRAMLEIÐSLUVARA